Fotbolti.net
29.09.26 - 12:15
Elvar Geir Magnússon

Sjáðu mörkin: Brassar unnu í sex marka leik í Ástralíu

Connor Metcalfe og Gabriel berjast um boltann.

Connor Metcalfe og Gabriel berjast um boltann.

Canon

Mynd: EPA

Ástralía 2 - 4 Brasilía
0-1 Vanderson ('3 )
1-1 Alessandro Circati ('28 )
2-1 Conor Metcalfe ('33 )
2-2 Raphinha ('45 , víti)
2-3 Bruno Guimaraes ('69 )
2-4 Vinicius Junior ('80 , víti)

Það voru 52 þúsund áhorfendur á fullum Lang Park í Brisbane sem sáu Brasilíu sigra Ástralíu 4-2 í dag.

Þetta var annar vináttulandsleikur þessara þjóða í glugganum en þau gerðu 1-1 jafntefli í síðustu viku. Ástralía breytti byrjunarliði sínu ekkert frá þeim leik á meðan Carlo Ancelotti, landsliðsþjálfari Brasilíu, gerði sjö breytingar.

Áhorfendur í dag þurftu aðeins að bíða í rúmar tvær mínútur eftir fyrsta marki leiksins. Vanderson, bakvörður Mónakó, skoraði með frábæru skoti.

Alessandro Circati jafnaði fyrir Ástralíu eftir hornspyrnu og Connor Metcalfe kom liðinu yfir með fallegu marki. Raphinha jafnaði af vítapunktinum og staðan 2-2 eftir gríðarlega fjörugan fyrri hálfleik.

Brassarnir voru svo sterkari aðilinn eftir hlé og sundurtættu vörn heimamanna þegar Endrick lagði upp mark fyrir Bruno Guimaraes. Það var svo Vinicius Jr sem átti lokaorðið með marki af vítapunktinum.
Sjáðu frábært aukaspyrnumark og Rayan bjarga Brössum í vináttulandsleik
TENGT EFNI

Sjáðu frábært aukaspyrnumark og Rayan bjarga Brössum í vináttulandsleik

0-1 Vanderson ('3 )

1-1 Alessandro Circati ('28 )

2-1 Conor Metcalfe ('33 )

2-2 Raphinha ('45 , víti)

2-3 Bruno Guimaraes ('69 )

2-4 Vinicius Junior ('80 , víti)
Jackson Irvine.

Jackson Irvine.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.