Fotbolti.net
29.09.26 - 11:30
Elvar Geir Magnússon

Piers Morgan: 100% að það þarf að fella Man City úr deildinni

Fjölmiðlamaðurinn umdeildi Piers Morgan.

Fjölmiðlamaðurinn umdeildi Piers Morgan.

Canon

Mynd: Piers Morgan Uncensored

Fjölmiðlamaðurinn umdeildi Piers Morgan segir að það þurfi að dæma Manchester City úr ensku úrvalsdeildinni eftir að félagið var fundið sekt um brot á 114 af 115 ákærum fyrir fjárhagsbrot.

City bíður eftir að vita hver refsing sín verður en brotin áttu sér stað milli 2009 og 2018. Talað hefur verið um að refsingin gæti verið allt frá sektum eða stigafrádrætti til falls í neðri deildir eða jafnvel sviptingar á titlum.
Refsingarnar sem Man City gæti fengið
TENGT EFNI

Refsingarnar sem Man City gæti fengið

Morgan, sem er þekktur stuðningsmaður Arsenal, segir að það verði að fella City úr deildinni og taka af þeim stig næstu árin.

„Það er 100% að það þarf að fella Man City, hundrað prósent. Þessi umræða um sekt og félagaskiptabann er galin, það kemur ekki til greina. Það þarf að dæma liðið úr deildinni, mér finnst að stig ættu að vera dregin af liðinu næstu fjögur árin. Þeir svindluðu á kerfinu og verða að fá alvöru refsingu," segir Morgan.

„Að sekta þá er engin refsing. Það er óhemju magni af olíu dælt upp úr tunnunum á hverjum degi í Abú Dabí. Refsingin verður að svíða."

Á þessum árum sem um ræðir vann Manchester City enska meistaratitilinn átta sinnum, Meistaradeildina, fjóra FA-bikara og sjö deildabikara.
Piers Morgan: 100% að það þarf að fella Man City úr deildinni
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.