Fotbolti.net
29.09.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Hlaðinn lofi eftir fyrsta landsleikinn fyrir Frakkland

Lucas Da Cunha í landsleiknum í gær.

Lucas Da Cunha í landsleiknum í gær.

Canon

Mynd: EPA

Lucas Da Cunha, 25 ára miðjumaður Como, lék í gær sinn fyrsta landsleik fyrir Frakkland og er hann hlaðinn lofi fyrir frammistöðu sína.

Da Cunha var sem akkeri á miðjunni í 1-0 sigri gegn Belgíu og var öflugur í að halda Youri Tielemans í skefjum. Þá var hann nálægt því að skora í leiknum en hann átti tilraun í tréverkið.
Þjóðadeildin: Einstaklingsframtak Olise tryggði Frökkum sigur
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Einstaklingsframtak Olise tryggði Frökkum sigur

„Da Cunha er einn af þessum leikmönnum sem maður vill strax sjá spila aftur. Þetta er prófíll sem Frakklandi hefur vantað. Hversu oft höfum við sagt að við þyrftum tæknilegan leikmann fyrir framan vörnina? Í fyrsta landsleik sínum var hann undir stöðugri pressu frá Belgíu, en hann hélt alltaf mikilli ró," sögðu sérfræðingar RMC Sport

Íþróttafréttamaðurinn Daniel Riolo segir Da Cunha hafa bætt liðið og sett stöðu Adrien Rabiot í hættu.

„Miðjan skipti sköpum og það er engin tilviljun að við sáum meiri hreyfingu og sveigjanlegri uppbyggingu í liðinu. Ég held að þetta sé líka vegna fjarveru ákveðinna leikmanna. Ég er ekki viss um að leikmaður eins og Adrien Rabiot geti nýst leikstíl Zinedine Zidane,“ segir Riolo.

Tölfræðin undirstrikar lofið sem Da Cunha fékk: 83 sendingar kláraðar af 89, fjögur einvígi og tvær tæklingar unnar.

Da Cunha kom í gegnum akademíu Rennes áður en hann fór til Nice og síðan Como í janúar 2023, þar sem hann hjálpaði ítalska liðinu að komast úr B-deildinni og alla leið í Meistaradeildina.
Lucas Da Cunha hélt Youri Tielemans niðri.

Lucas Da Cunha hélt Youri Tielemans niðri.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.