29.09.26 - 10:55
Elvar Geir Magnússon
Kristall fékk tveggja leikja bann - „Þetta var mjög 'soft'“

Kristall verður uppi í stúku hjá Brann næstu tvo leiki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristall í leik með Brann.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Íslenski landsliðsmaðurinn Kristall Máni Ingason verður ekki með félagsliði sínu, Brann í Noregi, í næstu tveimur leikjum; mikilvægum leijum gegn Viking og Vålerenga.
Kristall skoraði í 2-1 sigri gegn Bodö/Glimt fyrir landsleikjagluggann en fékk svo rautt spjald eftir VAR skoðun. Aganefnd norsku deildarinnar hefur nú gefið honum aukaleik í bann.
„Nei, þetta var mjög 'soft'. Hann kemur þarna fyrir mig og ég enda á því að taka hann niður," sagði Kristall við Fótbolta.net á dögunum þegar hann var spurður að því hvort rauða spjaldið hafi verið réttur dómur.

TENGT EFNI
Kristall: Ætla að sjá til þess að Freysi dansi ekki í lok tímabils
Liðsfélagar hans náðu að landa sigrinum þrátt fyrir liðsmuninn og Kristall segir það hafa verið létti.
„Þeir sýndu þvílíkan karakter. Við höfum fengið einhverja gagnrýni fyrir að varnarleikurinn sé ekki nógu góður en ef þú nærð að halda út í 20-30 mínútur tíu gegn Meistaradeildarliði Bodö/Glimt þá ertu að gera eitthvað rétt. Þetta var geggjað," sagði Kristall.
Það voru nokkur læti eftir rauða spjaldið og hvöss orðaskipti á milli þjálfarana. Brann er í sjöunda sæti norsku deildarinnar en á enn möguleika á Evrópusæti.