Fotbolti.net
29.09.26 - 13:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið U21: Fjórar breytingar frá Frakkaleiknum

Benoný Breki Andrésson.

Benoný Breki Andrésson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
U21 landslið Íslands mætir Sviss klukkan 15:00 í afskaplega mikilvægum leik í undankeppni Evrópumótsins. Strákarnir þurfa að vinna leikinn til að halda sér í möguleika á því að komast í umspil um sæti á mótinu.

Síðasti leikur var virkilega flottur hjá liðinu og endaði með 1-1 jafntefli gegn Frakklandi þar sem Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði mark Íslands úr aukaspyrnu.
Það sem U21 þarf að gera til að komast í umspil
TENGT EFNI

Það sem U21 þarf að gera til að komast í umspil

Lestu um leikinn: Ísland U21 0 - 0 Sviss U21
Búið er að opinbera byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Sviss en það eru fjórar breytingar á íslenska liðinu. Hlynur Freyr Karlsson kemur inn í hægri bakvörðinn í staðinn fyrir Hlyn Þórhallsson.

Þá kemur Galdur Guðmundsson inn í liðið fyrir Helga Fróða Ingason sem er tæpur fyrir leikinn og Kjartan Már Kjartansson tekur sæti Tómasar Orra Róbertssonar á miðsvæðinu.

Þá fer Viktor Bjarki Daðason á bekkinn og Benoný Breki Andrésson kemur inn í framlínuna.

Eggert Aron Guðmundsson, leikmaður Brann, er áfram með fyrirliðabandið hjá Íslandi.



Byrjunarlið Ísland U21:
1. Lúkas Petersson (m)
3. Júlíus Mar Júlíusson
4. Davíð Helgi Aronsson
5. Hlynur Freyr Karlsson
7. Benoný Breki Andrésson
8. Galdur Guðmundsson
9. Daníel Tristan Guðjohnsen
10. Eggert Aron Guðmundsson
15. Amin Cosic
18. Kjartan Már Kjartansson
22. Daníel Freyr Kristjánsson
Viktor Bjarki fer á bekkinn.

Viktor Bjarki fer á bekkinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eggert Aron er fyrirliði Íslands.

Eggert Aron er fyrirliði Íslands.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Frakkland7+1717
2Sviss8+1017
3Ísland8+512
4Færeyjar8-612
5Lúxemborg7-124
6Eistland8-142
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.