29.09.26 - 14:00
Elvar Geir Magnússon
U17: Ísland skoraði eftir 20 sekúndur og endaði með fullt hús

Bjarki Hrafn Garðarsson skoraði eitt af mörkum Íslands.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

U17 landslið karla sigraði Grikkland 3-2 í síðasta leik sínum í fyrri umferð undankeppni EM.
Ísland hafði unnið báða leiki sína í riðlinum til þessa, 4-0 gegn Gíbraltar og 3-1 gegn heimamönnum í Bosníu. Ísland vann því riðilinn og tekur þátt í A deild í seinni umferð undankeppninnar.

Sigurður Nói Jóhannsson, leikmaður KA, kom Íslandi yfir gegn Grikklandi í dag með marki eftir aðeins 20 sekúndur. Hnitmiðað skot hans rétt fyrir utan teig fór í bláhornið.
Grikkir jöfnuðu á elleftu mínútu en Bjarki Hrafn Garðarsson, leikmaður Dortmund, kom Íslandi aftur yfir á 35. mínútu eftir stungusendingu Bjarka Arnar Brynjarssonar.
Á 39. mínútu jafnaði Grikkland í 2-2 eftir að Marten Leon Jóhannsson markvörður átti misheppnaða sendingu og staðan jöfn í hálfleik.
Á 77. mínútu fékk Ísland vítaspyrnu en Magnús Daði Ottesen skaut yfir úr spyrnunni. Sigurmarkið kom aðeins mínútu síðar en það skoraði Styrmir Gíslason, leikmaður ÍA, með skoti úr teignum.
Leikurinn í heild:

TENGT EFNI
U17: Lengjudeildarmarkaskorarar og mjög slysalegt sjálfsmark í sigri á Gíbraltar

TENGT EFNI