Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
   mið 04. febrúar 2026 22:31
Kári Snorrason
Sameiningaviðræður ÍR og Leiknis: Sumir láta hreinlega tilfinningarnar ráða
Lengjudeildin
Rúmlega 100 manns mættu á upplýsingafundinn í Breiðholti í kvöld.
Rúmlega 100 manns mættu á upplýsingafundinn í Breiðholti í kvöld.
Mynd: Kári Snorrason
Brynjar Már og Reynir Haraldsson.
Brynjar Már og Reynir Haraldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er ástæða fyrir því að það sé alltaf verið að reyna þetta, tæknilega séð er þetta augljóst.“
„Það er ástæða fyrir því að það sé alltaf verið að reyna þetta, tæknilega séð er þetta augljóst.“
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Fólkið í hverfinu fengu svör hér í kvöld.“
„Fólkið í hverfinu fengu svör hér í kvöld.“
Mynd: Kári Snorrason
Fyrr í kvöld hélt fótboltadeild ÍR til upplýsingafundar sem varðar mögulega sameiningu ÍR og Leiknis. Á fundinum fór starfshópur með kynningu um hvernig skyldi hátta sameiningunni. Síðar meir var orðið gefið laust fyrir gesti sem spurðu fundarstjórum spjörunum úr og létu ekki á skoðunum sínum standa.

Auknar líkur eru á því að liðin mæti sameinuð til leiks í fótboltanum frá og með næsta ári. En viðræður hafa verið í gangi um að nýtt fótboltafélag, sem bæri nafnið Breiðholt, myndi taka þátt í öllum flokkum í karla- og kvennaflokki.

Meistaraflokkar karla hjá Leikni og ÍR leika báðir í Lengjudeildinni. Leiknir hefur ekki sent kvennalið til keppni í meistaraflokki síðan árið 2019, en kvennalið ÍR leikur í 2. deild.

Fótbolti.net ræddi við Brynjar Má Bjarnason, formann fótboltadeildar ÍR, um fundinn og sameiningarferlið í heild sinni.

„Ég var búinn að finna fyrir því að ÍR-ingar þurftu að fá opna kynningu. Koma, fá að spyrja spurninga og sjá þetta sjálft. Fólkið í hverfinu fengu svör hér í kvöld, þau þurftu að fá svör. Þetta er mikið tilfinningamál, maður sá það hér á fundinum.

Þetta skiptir fólkið miklu máli. Allir hérna inni eiga það sameiginlegt að vera Breiðhyltingar og það er gott hljóð í mörgum ÍR-ingum. En einhverjir eru hreinlega að láta tilfinningarnar ráða. Spyrja erfiðu spurningana sem þarf að gera, þetta eru mikilvægar spurningar. Það er verðugt verkefni sem við stöndum frammi fyrir, gríðarlega mikil vinna og það er gott að fá skoðanir frá öllum.“


Fimmta tilraun til sameiningar frá aldamótum
Hvað er öðruvísi núna?

„Ég held að þetta sé í sjötta eða sjöunda skiptið sem þetta er reynt. Fimmta skiptið á þessari öld. Eins og það var talað um á fundinum þá er ástæða fyrir því að það sé alltaf verið að reyna þetta. Þetta er tæknilega séð augljóst. Þetta eru einu tvö félögin sem eru í sama hverfi í Reykjavík.

Það sem er öðruvísi núna er að það er rosalega mikill þungi í þessum vinnuhóp sem kemur með þessa tillögu. Þetta eru jarðýtur sem hafa starfað mikið fyrir knattspyrnu. Þetta eru allt Breiðhyltingar sem vita hvað þeir eru að gera. Það er það sem er öðruvísi núna, það er meiri þungi á bakvið þetta. “


Hvar eru viðræður staddar?

„Eins og þessi upplýsingafundur var kynntur þá erum við á byrjunarreit, segir Brynjar en hann segist ekki halda að viðræður hafi áður gengið jafn langt.

Aðspurður um hver sé stærsti hjallinn í viðræðunum svaraði Brynjar; „Það eru bara tilfinningarnar.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner