Nico Schlotterbeck, miðvörður Borussia Dortmund, var hetja liðsins í 2-1 sigrinum á RB Leipzig í þýsku deildinni í gær.
Dortmund var að leiða 2-1 þegar rúmar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.
Timo Werner fékk boltann hægra megin í teig Dortmund og skaut á markið. Boltinn fór framhjá Alexander Meyer í markinu og var á leið í netið en Schlotterbeck var réttur maður á réttum stað.
Hann náði að setja öxlina út og beina þannig boltanum frá markinu — og þannig komst Dortmund aftur í efsta sæti deildarinnar.
Sjáðu Schlotterbeck bjarga á línu
Athugasemdir