Inter mun keppa við Liverpool um Kimmich - Verbruggen á ratsjá Chelsea - Real Madrid fylgist með Wharton
   þri 04. mars 2025 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Berglind Þrastar heim í Hauka (Staðfest)
Mætt aftur í Hauka
Mætt aftur í Hauka
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Berglind Þrastardóttir er gengin í raðir Hauka frá FH og gerir tveggja ára samning við uppeldisfélagið.

Hún hélt frá Haukum í FH í glugganum 2022 og hjálpaði liðinu að komast upp í Bestu deildina. Hún spilaði svo tíu leiki með FH í Bestu deildinni 2023 og átta leiki 2024.

Hún er fædd árið 2004 og er fyrrum unglingalandsliðskona; á að baki þrjá leiki með U15 og fjóra með U19.

Haukar verða í Lengjudeildinni í sumar og er Berglind þriðji leikmaðurinn sem Haukar fá frá FH. Fyrir höfðu þær Selma Sól Sigurjónsdóttir og Bryndís Halla Gunnarsdóttir skipt yfir í Hauka.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner