Fotbolti.net
04.03.25 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

KF fær bandarískan sóknarmann (Staðfest) - Marinó Snær framlengir

KF fær bandarískan sóknarmann (Staðfest) - Marinó Snær framlengir
Canon

Mynd: KF

KF er að undirbúa sig fyrir komandi átök í 3. deild karla eftir að hafa fallið afar naumlega úr 2. deildinni í fyrra.
KF féll á einu stigi þar sem liðið endaði með 18 stig, einu stigi á eftir Kormáki/Hvöt.

Nú hefur félagið fengið bandaríska sóknarmanninn Brendan Koplin til liðs við sig. Hann leikur sem framherji að upplagi en getur einnig spilað úti á vinstri kanti eða sem sóknartengiliður.

Brendan er 25 ára gamall og hefur á undanförnum árum spilað fyrir Blue Goose í Bandaríkjunum, Merani Tbilisi í Georgíu, Christchurch í Nýja-Sjálandi og Casteltermini á Ítalíu.

Hann gerir eins árs samning við KF og verður áhugavert að fylgjast með honum í 3. deildinni.

Aðrar fréttir úr herbúðum KF eru þær að Marino Snær Birgisson, fæddur 1999, er búinn að gera nýjan eins árs samning við félagið.

Marinó Snær hefur verið mikilvægur hlekkur í liði KF síðustu ár og ætlar að taka slaginn aftur með liðinu.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.