Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 04. apríl 2021 23:30
Aksentije Milisic
Sancho missir af fyrri leiknum gegn Man City
Mynd: Getty Images
Jadon Sancho, leikmaður Dortmund, mun að öllum líkindum missa af fyrri leik liðsins gegn Manchester City í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á þriðjudaginn.

Sancho á við vöðvameiðsli að stríða og hefur hann því ekki verið með Dortmund í síðustu leikjum. Bundnar voru vonir við að hann myndi ná einvíginu gegn City en nú er ljóst að hann missir allavega af fyrri leik liðanna.

Sancho, sem hefur skorað sex mörk og lagt upp níu í þýsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili, vill ólmur mæta sínu gamla félagi en félagið vonast eftir því að hann verði klár fyrir síðari leik liðanna.

Edin Terzic, þjálfari Dortmund, viðurkenndi á dögunum að fátt bendir til þess að Sancho verði klár í slaginn. Sancho er búinn að vera í Dubai og vinna að endurkomu sinni en þessi leikur er talinn koma of snemma fyrir Englendinginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner