04.05.26 - 22:55
Fótbolti.net
Lið og leikmaður 2. umferðar - Lætur heldur betur að sér kveða

Kári Sigfússon er leikmaður umferðarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dagur Ingi Hammer er með þrjú mörk í tveimur leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kári Sigfússon er leikmaður umferðarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

2. umferð Lengjudeildarinnar lauk í kvöld þegar Fylkir vann 2-0 sigur gegn Vestra í Árbænum. Fylkismenn eru með fullt hús eftir fyrstu tvær umferðarinar.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Kári Sigfússon - Fylkir
Átti frábæra stoðsendingu í fyrra marki Fylkis og skoraði svo virkilega gott mark. Kári með þrjár stoðsendingar gegn Ægi í fyrstu umferð svo ekki er annað hægt að segja en að hann láti heldur betur að sér kveða í upphafi móts.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Kári Sigfússon - Fylkir
Átti frábæra stoðsendingu í fyrra marki Fylkis og skoraði svo virkilega gott mark. Kári með þrjár stoðsendingar gegn Ægi í fyrstu umferð svo ekki er annað hægt að segja en að hann láti heldur betur að sér kveða í upphafi móts.

Benedikt Daríus Garðarsson skoraði fyrra mark Fylkis gegn Vestra og er einnig í liði umferðarinnar. Þá er Heimir Guðjónsson þjálfari umferðarinnar.
Þróttur og HK hafa líka byrjað mótið á tveimur sigrum. Sigurður Egill Lárusson átti tvær stoðsendingar í 3-1 sigri Þróttar gegn ÍR. Aron Snær Ingason fiskaði rautt spjald á ÍR í leiknum. Þorsteinn Aron Antonsson skoraði og var maður leiksins í 2-1 sigri HK gegn Ægi.
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson skoraði bæði mörk Leiknis í 2-1 útisigri gegn Gróttu og er kominn með þrjú mörk í fyrstu tveimur umferðunum. Daði Bærings Halldórsson fyrirliði Leiknis var öflugur á Nesinu.
Modoumatarr Mbye miðjumaður Völsungs var valinn maður leiksins í 0-0 jafntefli gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ.
Markalaust jafntefli varð einnig niðurstaðan í grannaslag Grindavíkur og Njarðvíkur. Varnarmennirnir Damir Muminovic og Eiður Aron Sigurbjörnsson voru öryggir og Guy Smit markvörður Njarðvíkur átti góðar vörslur og kom í veg fyrir að Grindavík myndi skora í seinni hálfleiknum.
Fyrri úrvalslið:
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR

Dagur Ingi Hammer er með þrjú mörk í tveimur leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 20 | +31 | 42 |
| 2 | Þróttur R. | 20 | +18 | 37 |
| 3 | Fylkir | 20 | +12 | 37 |
| 4 | HK | 20 | +12 | 35 |
| 5 | Njarðvík | 20 | +10 | 35 |
| 6 | Grótta | 20 | -3 | 27 |
| 7 | Vestri | 20 | -9 | 27 |
| 8 | Leiknir R. | 20 | 0 | 25 |
| 9 | ÍR | 20 | -5 | 25 |
| 10 | Grindavík | 20 | -11 | 21 |
| 11 | Völsungur | 20 | -16 | 20 |
| 12 | Ægir | 20 | -39 | 8 |
