Óvíst er hvort belgíski varnarmaðurinn Jan Vertonghen klári tímabilið með Tottenham.
Vertonghen verður samningslaus 30. júní og Tottenham hefur beðið hann um að spila með liðinu út júlí og klára tímabilið.
Vertonghen hefur ekki fengið framlengingu á samningi sínum hjá Tottenham fyrir næsta ár og þessi 33 ára gamli leikmaður er nú að vega og meta hvort hann eigi að klára tímabilið með liðinu eða ekki.
Ástæðan er sú að Vertonghen vill ekki hætta á að meiðast og fá þá ekki samning hjá öðru félagi fyrir næsta tímabil.

Vertonghen hefur meðal annars verið orðaður við Napoli og Inter á Ítalíu sem og félög á Spáni.
Athugasemdir