Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fim 04. júní 2026 12:35
Elvar Geir Magnússon
Norðmenn mættir með sína útgáfu af Víkingaklappinu
Mynd: EPA
Norska landsliðið er komið til Bandaríkjanna en liðið flaug þangað með Loftleiðum Icelandic, dótturfélagi Icelandair Group. Gríðarleg spenna er í Noregi fyrir mótinu enda risastjörnur á borð við Martin Ödegaard og Erling Haaland í liði þeirra.

Noregur er í I-riðli á mótinu ásamt Frakklandi, Senegal og Írak.

Noregur sigraði Svíþjóð í vináttulandsleik í vikunni 3-1. Jörgen Strand Larsen skoraði tvö mörk en það voru stuðningsmenn Noregs sem vöktu mesta athygli.

Þeir eru komnir með sína útgáfu af Víkingaklappinu sem íslensu stuðningsmennirnir gerðu frægt á EM 2016 og HM 2018. Í norsku útgáfunni þykjast stuðningsmennirnir vera að róa skipi.




Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner