Florentino Pérez forseti Real Madrid berst um áframhaldandi setu í forsetastól stórveldisins og munu kosningar fara fram um helgina.
Yfirgnæfandi líkur eru á því að Pérez nái endurkjöri og er hann búinn að undirbúa þrjár tilkynningar eftir niðurstöðu kosninganna.
José Mourinho verður kynntur sem nýr þjálfari og staðfesti Pérez sjálfur í gær að Ibrahima Konaté verður fyrsti nýi leikmaðurinn sem Real Madrid kynnir til leiks í sumar ef hann nær endurkjöri.
Franski landsliðsmiðvörðurinn Konaté, 27 ára, kemur á frjálsri sölu frá Liverpool.
02.06.2026 17:13
Konate að semja við Real Madrid
Næstur á eftir honum verður Denzel Dumfries keyptur úr röðum Ítalíumeistara Inter. Real borgar 20 milljónir evra til að greiða upp riftunarákvæði hollenska vængbakvarðarins sem á að berjast við Trent Alexander-Arnold um sæti í byrjunarliðinu.
Þrítugur Dumfries er búinn í læknisskoðun á meðan Konaté er ekki langt frá því að ljúka sinni skoðun. Báðir eru þeir uppteknir með landsliðum sínum í aðdraganda HM þessa dagana.
02.06.2026 22:01
Dumfries fer til Real Madrid





