Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
   þri 02. júní 2026 17:13
Elvar Geir Magnússon
Konate að semja við Real Madrid
Mynd: EPA
Franski varnarmaðurinn Ibrahima Konate er kominn vel á veg í viðræðum við spænska stórliðið Real Madrid um að ganga í raðir þess á frjálsri sölu.

Tilkynnt var nýlega að Konate myndi yfirgefa Liverpool í sumar, þegar samningur hans rennur út.

Þessi 27 ára leikmaður hafði verið í viðræðum um nýjan samning við Liverpool en þær runnu út í sandinn þar sem félagið var ekki tilbúið að ganga að kröfum hans um kaup og kjör.

Konate lék 183 leiki fyrir Liverpool í öllum keppnum og vann ensku úrvalsdeildina hjá félaginu, auk þess að vinna FA-bikarinn og í tvígang deildabikarinn.

Það stefnir í að annað árið í röð fari leikmaður frá Liverpool til Real Madrid á frjálsri sölu en Trent Alexander-Arnold gerði það í fyrra.
Slapp
banner