24.07.26 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Markavél Celtic stóðst læknisskoðun - Á leið í úrvalsdeildina

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Japanski framherjinn Daizen Maeda er að ganga frá félagaskiptum til Ipswich Town sem eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni. Maeda fær þar með að upplifa draum sinn um að spila í ensku úrvalsdeildinni.

TENGT EFNI
Markavél Celtic þráir að spila á Englandi
Ipswich borgar 8 milljónir punda fyrir Maeda og geta 2 milljónir bæst við upphæðina með árangurstengdum aukagreiðslum, en Maeda átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Celtic.
Japaninn hefur verið gríðarlega mikilvægur fyrir Skotlandsmeistarana síðustu tvö ár. Hann átti nokkuð rólegt tímabil á síðustu leiktíð þar til í lokaumferðunum, þegar hann skoraði 9 mörk og gaf 2 stoðsendingar í síðustu 7 leikjum tímabilsins. Hann reyndist þar með hetja Celtic þar sem hann hjálpaði liðinu að vinna tvennuna á afar erfiðu tímabili.
Maeda, 28 ára, kom í heildina að 27 mörkum í 54 leikjum á síðustu leiktíð, en leiktíðina þar á undan kom hann með beinum hætti að 45 mörkum í 51 leik og vakti mikinn áhuga utan landsteinanna.
Sky Sports er meðal fjölmiðla sem greina frá því að Maeda sé búinn að standast læknisskoðun hjá Ipswich og verði kynntur til leiks sem nýr leikmaður félagsins í kvöld eða á morgun.

Ipswich að krækja í öfluga leikmenn

Mynd: EPA

Mynd: EPA