Fotbolti.net
24.07.26 - 19:10
Viktor Ingi Valgarðsson
Kjarninn

Byrjunarlið Víkings og Keflavíkur: Sölvi hristir vel í hópnum en bara nauðsynlegar breytingar hjá gestunum

Eiður Orri Ragnarsson er á láni frá Víking og má ekki spila í kvöld

Eiður Orri Ragnarsson er á láni frá Víking og má ekki spila í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í kvöld er einn Bestu Deildar karla leikur á dagskrá. Víkingur fær Keflavík til sín á Víkingsvöll á slaginu 20:00.

Keflavík kemur til leiks með góðan sigur á baki en Víkingar töpuðu fyrsta leik sínum í deildinni í síðustu umferð. Ekki við öðru að búast en hörkuleik í kvöld en leikurinn er hluti af 16.umferð Bestu Deild karla.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 - 0 Keflavík

Sölvi Geir Ottesen gerir mikið af breytingum frá tapinu gegn Þór. Aron Snær kemur í markið og verður með Ekroth og Vatnhamar sér til varnar. Einnig kemur Helgi Guðjóns í vörnina. Daði Berg skoraði gegn Þór og byrjar í kvöld. Óskar Bogga, Stígur Diljan og Karl Friðleifur koma sömuleiðis í byrjunarliðið.

Valdimar Þór Ingimundarson er í banni í vegna uppsafnaðra spjalda og verður ekki með í kvöld.

Haraldur Freyr Guðmundsson gerir þrjár breytingar á sínu liði og eru þær allar svona nauðsynlegar, Eiður Orri Ragnarsson sem skoraði tvö mörk í síðasta leik má ekki spila gegn Víking því hann er á láni frá þeim. Muhamed Alghoul er síðan að taka út leikbann vegna uppsafnaðra spjalda, en hann skoraði einnig í síðasta leik. Síðan meiddist Anton Kralj það er ljóst að hann verður ekki meira með Keflavík í sumar. Inn fyrir þá koma Axel Ingi, Dagur Ingi og Ásgeir Páll.

Byrjunarlið Víkingur R.

Aron Snær Friðriksson, Peter Oliver Ekroth (fyrirliði), Gunnar Vatnhamar, Viktor Örlygur Andrason, Helgi Guðjónsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Daði Berg Jónsson, Óskar Borgþórsson, Karl Friðleifur Gunnarsson, Sveinn Margeir Hauksson, Stígur Diljan Þórðarson

Byrjunarlið Keflavík

Ásgeir Orri Magnússon, Axel Ingi Jóhannesson, Ígnacio Heras Anglada, Sindri Snær Magnússon (fyrirliði), Dagur Ingi Valsson, Þorlákur Breki Þ. Baxter, Stefan Alexander Ljubicic, Marin Mudrazija, Marin Brigic, Alpha Conteh, Ásgeir Páll Magnússon

Valdimar Þór Ingimundarson tekur út leikbann vegna uppsafnaðra spjalda

Valdimar Þór Ingimundarson tekur út leikbann vegna uppsafnaðra spjalda

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daði Berg Jónsson byrjar í kvöld

Daði Berg Jónsson byrjar í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Keflavík15-419
6Valur16-619
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.