Sara Björk byrjar sinn fyrsta leik fyrir uppeldisfélagið í 18 ár

Sara Björk Gunnarsdóttir snýr aftur í íslenska boltann með uppeldisfélagi sínu Haukum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sara Björk Gunnarsdóttir snýr aftur í íslenska boltann með uppeldisfélagi sínu Haukum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sara Björk Gunnarsdóttir er í byrjunarliði Hauka sem tekur á móti HK í Lengjudeild kvenna á BIRTU-vellinum í kvöld.
Þetta verður fyrsti leikur Söru fyrir uppeldisfélagið í 18 ár, en hún lék síðast með Haukum árið 2008 áður en hún gekk til liðs við Breiðablik og hélt síðar út í farsælan atvinnumannaferil.
Sara sneri heim í sumar eftir að hafa síðast leikið með Al Qadsiah í Sádi-Arabíu og fer beint í byrjunarlið Hauka í sínum fyrsta leik.
Leikur Hauka og HK hefst klukkan 19:15 og er hægt að fylgjast með honum í beinni textalýsingu á Fótbolta.net og í beinu streymi á Livey.
Byrjunarlið Haukar
Viktoría Sólveig K. Óðinsdóttir, Anna Rut Ingadóttir, Valgerður Ósk Valsdóttir, Ísold Hallfríðar Þórisdóttir, Berglind Þrastardóttir, Halla Þórdís Svansdóttir, Kristín Fjóla Sigþórsdóttir (fyrirliði), Maggý Lárentsínusdóttir, Ragnheiður Tinna Hjaltalín, Elma Dís Ólafsdóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir
Byrjunarlið HK
Kaylie Erin Bierman, Anja Ísis Brown, Valgerður Lilja Arnarsdóttir (fyrirliði), Henríetta Ágústsdóttir, Ísabel Rós Ragnarsdóttir, Cally Queen Togiai, Alma Mathiesen, Ragnhildur Sóley Jónasdóttir, Kristjana Ása Þórðardóttir, Thelma Sól Óðinsdóttir, Klara Mist Karlsdóttir





