banner
   fim 04. ágúst 2022 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Daniel James spilar með varaliðinu á morgun
Mynd: EPA

Daniel James mun spila með varaliði Leeds á morgun, þetta staðfesti Jesse Marsch á blaðamannafundi fyrir fyrstu umferðina í ensku úrvalsdeildinni sem fram fer um helgina.


James fékk rautt spjald í 3-0 tapi liðsins gegn Chelsea í 36. umferð deildarinnar á síðustu leiktíð og fékk þriggja leikja bann. Hann tekur því út leikbann í fyrstu umferð deildarinnar í ár.

Marsch greindi frá því að James hafi sérstaklega beðið um að fá að spila með varaliðinu á morgun sem mætir Derby í fyrstu umferð varaliðs deildarinnar.

James gekk til liðs við Leeds frá Manchester United síðasta sumar og spilaði 35 leiki og skoraði fjögur mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner