Fotbolti.net
04.08.26 - 20:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deildin: Greko hetja Þórs gegn Breiðabliki

Christian Greko Jakobsen

Christian Greko Jakobsen

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór 1 - 0 Breiðablik
1-0 Christian Jakobsen ('42 )
Lestu um leikinn
Þór vann virkilega sterkan sigur á Breiðabliki á Akureyri í kvöld. Þórsarar byrjuðu leikinn vel. Fannar Daði Malmquist Gíslason átti hörku tilraun en boltinn fór í slána.

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, dómari leiksins, þurfti að fara af velli vegna meiðsla undir lok fyrri hálfleiks og Sigurður Hjörtur Þrastarson tók við af honum.

Stuttu síðar fékk Þór horn og Christian Greko Jakobsen var einn á fjærstönginni og setti boltann í netið og kom Þór yfir.

Ágúst Eðvald Hlynsson komst í gott færi eftir klukkutíma leik en Anton Ari Einarsson varði vel frá honum.

Blikarnir tóku við sér í kjölfarið og fengu góð færi til að jafna metin. Þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma var mikill darraðadans inn á markteig Þórs en þeim tókst að bjarga.

Nær komust gestirnir ekki og gríðarlega sterkur sigur heimamanna staðreynd. Þór er komið af botninum og er í 11. sæti með 15 stig, tveimur stigum á undan FH og með jafn mörg stig og grannarnir í KA. Breiðablik er í 4. sæti með 29 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2KR20+2743
3Fram20+1443
4Breiðablik20+530
5Keflavík20-328
6ÍA20-426
7Stjarnan20-1024
8Valur20-723
9FH20-1218
10ÍBV20-1217
11KA20-1416
12Þór20-3015
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.