Fotbolti.net
04.08.26 - 16:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Blikar ekki áfram eftir ótrúlega vítakeppni

Blikar ekki áfram eftir ótrúlega vítakeppni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Breiðablik 1 - 1 Aktobe
0-2 fyrir Aktobe í vítaspyrnukeppni
0-1 Yekaterina Babshuk ('12 )
1-1 Katelyn Duong ('16 )
Rautt spjald: Alexandre Semenov, Aktobe ('90)
Lestu um leikinn
Breiðablik mætti í dag meisturunum frá Kasakstan í forkeppni Meistaradeildarinnar.

Blikar lentu undir á 12. mínútu en Katelyn Duong jafnaði metin fjórum mínútum seinna eftir stoðsendingu frá Karitas Tómasdóttur.

Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum en Breiðablik var líklegra liðið í seinni hálfleiknum. Gripið var til framlengingar og á áttundu mínútu hennar var dæmd vítaspyrna þegar leikmaður Aktobe sparkaði boltanum upp í höndina á sér inn á eigin vítateig. Agla María Albertsdóttir setti boltann á vítapunktinn en þá ákvað spænski dómari leiksins að hætta við vítadóminn og leikurinn hélt áfram.

Ekkert var skorað í framlengingunni og því var haldið í vítaspyrnukeppni. Þar klikkaði Breiðablik úr öllum fjórum vítaspyrnum sínum og það nægði Aktobe að skora úr sínum fyrstu tveimur. Tvær fyrstu spyrnur Blika voru varðar en seinni tvær fóru yfir markið.

Breiðablik á því ekki lengur möguleika á því að fara í 3. umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni og mætir á föstudag Dinamo Minsk í leik um sæti í Evrópubikarnum.
Blikar ekki áfram eftir ótrúlega vítakeppni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.