04.08.26 - 21:12
Hafþór Örn Laursen
Dom Furness: Það voru sögð hvöss orð í hálfleik
Auglýsing

Dominic Furness, þjálfari Kormáks/Hvatar

Mynd: Kormákur/Hvöt

Kormákur/Hvöt tók á móti KFA í 8-liða úrslitum Gatorade-bikarsins í kvöld og sigruðu þann leik 2-1. Fréttaritari Fótbolta.net var á staðnum og tók viðtal við Dom Furness, þjálfara Kormáks/Hvatar eftir leik.
Lestu um leikinn: Kormákur/Hvöt 2 - 1 KFA
''Mér líður mjög vel. Þetta var mjög erfiður leikur og KFA eru með mjög gott lið og valda öllum liðum usla hvort sem það sé í bikar eða deild.''
„Við litum á þetta í hálfleik og það voru sögð hvöss orð því mér fannst við hefðum getað verið 3-4 mörkum yfir í fyrri. Leikmennirnir tóku því vel til sín og náðu svo að sigla þessu heim.''
Heimamenn voru mjög óheppnir með tréverkið í kvöld, en þeir skutu þrisvar sinnum í stöngina og einu sinni í þverslánna.
„Það jákvæða er að við erum að við mætum á rétta staði en það neikvæða er að þetta eru færi sem við eigum að klára.''
Var þetta svipaður leikur og þann sem þið spiluðu gegn þeim fyrr í sumar?
Munurinn var að það var enginn vindur í þessum leik eins og fyrir austan. Þeir voru mikið meira með boltann í þeim leik því heimaleikir eru alltaf erfiðir fyrir útiliðin. Ég held að Sten Reinkort gerði mikinn gæfumun fyrir okkur svo það var einn munur á leiknum.''
Að lokum var spurt Dom hvort hann hefði einhvern draumaandstæðing í undanúrslitunum og svarið var einfalt.
„Eins og ég sagði við þig seinast, þá vil ég bara heimaleik.''
Næsti leikur Kormáks/Hvatar verður gegn Þrótti Vogum á Blönduósvelli næstkomandi laugardag, 8. ágúst.