Ekkert tilboð borist í Kjartan Kára - „Tilbúnir að selja menn fyrir rétt verð“

„Við erum alls ekki á þeim stað að við erum búnir að selja hann eða á þeim stað að fara að selja hann.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Þór Viðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skorað þrjú og lagt upp fimm á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ef eitthvað myndi breytast yrði hann mjög spennandi kostur“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við erum alls ekki á þeim stað að við erum búnir að selja hann eða á þeim stað að fara að selja hann.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net áhuga á Kjartani og gæti hann fyllt í skarð Óskars Borgþórssonar sem ökklabrotnaði á dögunum.

Mjög slæmar fréttir af Víkingum
Davíð segir ekkert tilboð hafa borist í Kjartan. „Nei, við vitum af því að það eru lið sem hafa áhuga á honum en það er ekkert konkret.“
Falur fyrir rétt verð
Kjartan var orðaður við Víking fyrir rúmu ári síðan en hélt þá kyrru fyrir í Hafnarfirði. Sú tala sem Fótbolti.net hefur heyrt fleygt fram er að Víkingur sé tilbúið að greiða 15 milljónir króna fyrir leikmanninn. Félagaskiptaglugginn í Bestu deildinni er opinn til 12. ágúst.
Er möguleiki á að hann fari frá FH í glugganum?
„Það er bara með hann eins og með alla aðra leikmenn. Við hlustum alltaf á tilboð og erum tilbúnir að selja menn fyrir rétt verð, eða það sem okkur finnst sanngjarnt. Það eru einhverjar líkur á að hann fari en ég myndi telja meiri líkur á því að hann klári tímabilið með okkur og við getum vonandi selt hann út erlendis eftir tímabil,“ segir Davíð.
Erlingur spennandi kostur ef eitthvað breytist
Erlingur Agnarsson, leikmaður Víkings, hefur verið í takmörkuðu hlutverki það sem af er tímabils. Möguleiki er að hann yfirgefi félagið í glugganum og hefur hann verið orðaður við FH og Keflavík.
Þá hefur verið rætt um mögulegan skiptidíl Víkings og FH þar sem Erlingur færi í FH og Kjartan í Víking. Ef af yrði þá fengi FH einnig væna greiðslu frá Víkingi.
Er Erlingur leikmaður sem þið hafið áhuga á?
„Erlingur er mjög flottur leikmaður. En við erum mjög vel mannaðir núna í þessum kantstöðum. En ef eitthvað myndi breytast yrði hann mjög spennandi kostur,“ segir Davíð að lokum.

Davíð Þór Viðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skorað þrjú og lagt upp fimm á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ef eitthvað myndi breytast yrði hann mjög spennandi kostur“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

