Fotbolti.net
04.08.26 - 20:27
Haraldur Örn Haraldsson
Gatorade bikar Fótbolti.net

Guðjón Pétur: Við erum að reyna að vinna allar keppnir

Auglýsing
Guðjón Pétur: Við erum að reyna að vinna allar keppnir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er gott að komast áfram," sagði Guðjón Pétur Lýðsson þjálfari Hauka eftir 3-2 sigur gegn Reyni Sandgerði í 8-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins í kvöld.

Lestu um leikinn: Haukar 3 - 2 Reynir S.

„Gott að fá svona góðan leik stuttu eftir þjóðhátið, þannig menn hafa getað hlaupið af sér smá. Það er búið að vera smá frí, þannig gott að fá góðan leik," 

Haukarnir eru þá komnir í undanúrslit og því aðeins einn leikur milli þeirra og Laugardalsvallar.

„Við erum að reyna að vinna allar keppnir sem við erum í. Við erum búnir að vinna Lengjubikarinn, stefnum á að vinna 2. deildina og þetta er eitt af þessum keppnum sem við erum í og við viljum bara vinna hana," sagði Guðjón.

Andstæðingurinn í kvöld var Reynir Sandgerði en þeir eru í 3. sæti í 3. deildinni. Haukarnir því talið betra liðið fyrir leik, en það þurfti þolinmæði til að vinna þennan leik.

„Þetta var góður leikur, og svona bikarleikir geta oft verið erfiðir, mér fannst strákarnir spila bara góðan leik. Það var smá einbeitingarleysi í fyrsta markinu, og það riðlaði okkur aðeins. Svo fannst mér við vera með yfirburði allan leikinn, fá fullt af færum og góðar stöður. Sigurinn hefði alveg getað verið stærri finnst mér," sagði Guðjón.

Guðjón var ekki í hinum klassísku þjálfara fötum á hliðarlínunni. Heldur var hann mættur í iðnaðarmanna buxunum sínum.

„Maður er bara að koma beint úr vinnunni, er þetta ekki bara tískan í dag. Þú færð mig bara eins og ég er, ég er ekki mikið fyrir að vera í fínum fötum. Þannig þetta er bara iðnaðurinn, elska það. Taka á því og leggja sig fram, það er það sem þetta snýst um," sagði Guðjón.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.