04.08.26 - 12:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
ÍBV fær serbneskan markmann (Staðfest)

Eyjamenn bæta við hópinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari er aðalmarkvörður ÍBV. Hann er á láni frá KÍ Klaksvík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjamenn bæta við hópinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Serbinn Ivan Vidrih hefur fengið félagaskipti til ÍBV og má vera í leikmannahópi liðsins þegar Eyjamenn heimsækja Víkinga heim á sunnudag.
Vidrih, sem verður 21 árs seinna í ágúst, kemur frá FK Buducnost Dobanovci sem spilar í þriðju efstu deild í Serbíu. Á Transfermarkt segir að hann sé einnig með slóvenskan ríkisborgararétt.
Hann er uppalinn hjá Partizan og hefur verið í Serbíu og á Spáni til þessa á ferlinum.

TENGT EFNI
Markmenn frá Grindavík og Serbíu æfa með ÍBV
Eyjamenn hafa verið með augun opin á markaðnum varðandi markmannsmálin því Marcel Zapytowski vildi fara frá félaginu og samdi fyrir helgi við norska félagið Egersund.
Marcel og Ari í Haraldsstovu Petersen mynduðu markvarðateymi ÍBV, Marcel átti gott tímabil í fyrra, byrjaði tímabilið í ár sem aðalmarkvörður en missti svo sæti sitt.
Ekki fundust upplýsingar um spilaða leiki hjá Vidrih í meistaraflokki. ÍBV situr í 9. sæti Bestu deildarinnar.