Fotbolti.net
01.08.26 - 11:03
Elvar Geir Magnússon

Fjórir orðaðir við forsetastól FIFA ef Infantino hrökklast frá völdum

Nasser Al-Khelaifi, forseti PSG.

Nasser Al-Khelaifi, forseti PSG.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Gianni Infantino, forseti FIFA, er búinn að staðfesta að hætt hefur verið við áætlanir um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA eftir hávær mótmæli úr öllum áttum.

Hjá flestum samtökum þyrfti Infantino líklega að segja af sér út af málí þessum stærðarflokki en FIFA eru engin venjuleg samtök.

Infantino hefur verið forseti FIFA síðan 2016 en þar áður var hann framkvæmdastjóri hjá sambandinu í sjö ár. Hann hefur tvisvar verið endurkjörinn án mótframboðs og búist var við því að það sama yrði uppi á teningnum í mars á næsta ári.

Infantino hefur verið með afgerandi stuðning flestra aðildarlanda FIFA en eftir stormasama mánuði gæti staðan mögulega breyst. Ef Infantino hrökklast frá völdum, hver gæti þá orðið næsti forseti FIFA? BBC nefnir fjóra mögulega kandídata.
FIFA hættir við áformin eftir hávær mótmæli
TENGT EFNI

FIFA hættir við áformin eftir hávær mótmæli

Þar á meðal er Nasser Al-Khelaifi frá Katar, forseti PSG og formaður félagsliðasamtaka Evrópu. Sögusagnir eru þó í gangi um að hann hafi í raun ekki sérstakan áhuga á að verða forseti FIFA.

Victor Montagliani, forseti Concacaf og fyrrum formaður kanadíska fótboltasambandsins, en hann átti stóran þátt í framkvæmd HM 2026 og er með sterkar tengingar.

Sjeik Salman bin Ebrahim Al Khalifa hefur verið forseti fótboltasamabands Asíu síðan 2013 og meðlimur í konungsfjölskyldunni í Barein.

Þá er hinn sænski Mattias Grafström einnig nefndur en hann hefur verið framkvæmdastjóri FIFA síðan 2024. Það gæti þó unnið gegn honum hversu náinn samstarfsmaður Infantino hann er.
Victor Montagliani.

Victor Montagliani.

Canon

Mynd: EPA

Sjeik Salman bin Ebrahim Al Khalifa.

Sjeik Salman bin Ebrahim Al Khalifa.

Canon

Mynd: EPA

Mattias Grafström.

Mattias Grafström.

Canon

Mynd: EPA

infantino.

infantino.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.