04.08.26 - 21:40
Elvar Geir Magnússon
Myndband: Þúsundir mættu við útför Baresi

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Þúsundir syrgðu fótboltagoðsögnina Franco Baresi í dag en útför hans fór fram í Sant'Ambrogio Basilikunni í Mílanó.
Baresi varð 66 ára og lést í síðustu viku eftir að hafa verið að glíma við veikindi.
Baresi er algjör goðsögn hjá AC Milan en þekkt nöfn úr sögu félagsins voru við athöfnina, má þar til dæmis nefna Paolo Maldini, Marco van Basten, Clarence Seedorf, Roberto Baggio og Alessandro Costacurta.
Baresi þykir einn besti varnarmaður sögunnar en hann var fyrirliði Milan í 15 tímabil, lék 719 leiki og skoraði 33 mörk. Hann lék 81 landsleik fyrir Ítalíu og var í hópnum sem vann heimsmeistaramótið árið 1982.

TENGT EFNI
Franco Baresi er látinn
AC Milan fans had one last message for their legendary captain Franco Baresi at his funeral ?????? pic.twitter.com/tuFVpvbBD0
— Football on TNT Sports (@footballontnt) August 4, 2026