Fotbolti.net
04.08.26 - 21:10
Viktor Ingi Valgarðsson

Óli Stefán segir Selfoss „á góðum stað"

Auglýsing
Óli Stefán Flóventsson þjálfari Selfoss

Óli Stefán Flóventsson þjálfari Selfoss

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Selfoss tryggði sér sæti í undanúrslitum Gatorade bikarsins í dag með góðum 4-0 sigri á Ýmir. Leikurinn fór fram við frábærar aðstæður á JÁVERK-vellinum á Selfossi.

Lestu um leikinn: Selfoss 4 - 0 Ýmir

„Þetta var mjög gott. Erfið dagsetning fyrir þessa stráka, á þriðjudegi eftir verslunarmannahelgi. Tókum undirbúningin þannig að ég gaf þeim strax þriggja daga frí eftir síðasta leik. Tókum tvær léttar æfingar og keyrðum svo í þennan leik. Maður sá það að menn voru aðeins ryðgaðir, eðlilega. Þegar við fórum að finna taktin og líkjast sjálfum okkur var ég mjög ánægður með þetta."

„Credit á Ýmir þeir voru skiplagðir og gerðu okkur þetta erfitt, lokuðu svæðunum vel og voru hættulegir þegar þeir fóru af stað. Mér fannst þegar við fundum rhythman og þetta fór að smella hjá okkur þá fór þetta að líta betur og betur út."

„Það væri flott að fá heimaleik, okkur líður gríðarlega vel hérna."

Næsti leikur hjá Selfoss er úti gegn Víking Ólafsvík. „Síðasta svona ferðalagið út á landi fyrir okkur, það verður bara gaman og okkur hlakkar til. Fáum nokkra daga til þess að hlaða og endurstilla. Siðan er bara að halda í þennan takt sem við erum komnir í. Erum komnir þannig að mér líður einsog maður getur ekki tapað. Það er rosalega góður staður til að vera á. Vitum samt að við þurfum að vera með allt á fullu til þess að fá eitthvað út úr þessum leikjum. Deildinn er virkilega sterk og næsti andstæðingur er mjög öflugur líka þannig þetta verður bara skemmtilegt."

Viðtalið við Óla Stefán Flóventsson þjálfara Selfoss má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.  

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.