Fotbolti.net
04.08.26 - 16:07
Kári Snorrason

Szoboszlai gerir lítið úr rifrildunum

Ungverjinn gerir lítið úr atvikinu.

Ungverjinn gerir lítið úr atvikinu.

Canon

Mynd: EPA

Dominik Szoboszlai segir ágreiningur á milli hans og liðsfélaga sinna, Curtis Jones og Kostas Tsimikas, hafa verið blásið upp af fjölmiðlum.

Myndbönd náðust af þremenningunum eftir leik Liverpool gegn Wrexham í New York í síðustu viku þar sem þeir tókust á þegar liðið gekk yfir völlinn til að þakka stuðningsmönnum.
Myndband: Curtis Jones reifst við liðsfélagana eftir leik
TENGT EFNI

Myndband: Curtis Jones reifst við liðsfélagana eftir leik

Í leiknum gaf Szoboszlai fyrirliðabandið til Tsimikas frekar en Jones þegar honum var skipt af velli. Í rifrildinu henti sá gríski bandinu á völlinn.

Í 4-2 tapi Liverpool gegn Leeds á sunnudag rétti þó Szoboszlai Jones fyrirliðabandið þegar honum var skipt af velli.

„Þetta var aldrei neitt rifrildi á milli okkar þriggja. Við vorum bara að ræða eitthvað inni á vellinum. Sem þið (fjölmiðlarnir) gerðuð svo mjög mikið úr á eftir. Næst munum við sjá til þess að gera það inni í búningsklefa. Enginn var reiður út í neinn. Það er allt komið á hreint, það er allt í góðu,“ sagði sá ungverski.
Curtis Jones virtist hafa átt upptökin að rifrildinu.

Curtis Jones virtist hafa átt upptökin að rifrildinu.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.