Fotbolti.net
04.08.26 - 20:40
Haraldur Örn Haraldsson
Gatorade bikar Fótbolti.net

Tommy Nielsen: Ég bað um að við myndum gefa þeim leik og við gerðum það

Auglýsing
Tommy Nielsen: Ég bað um að við myndum gefa þeim leik og við gerðum það
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

„Ég var bara mjög ánægður með mitt lið, þeir stóðu sig mjög vel," sagði Tommy Nielsen þjálfari Reyni Sandgerði eftir 3-2 tap gegn Haukum í 8-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins í kvöld.

Lestu um leikinn: Haukar 3 - 2 Reynir S.

„Ég ætla ekki að segja að úrslitin séu ósanngjörn en við gátum líka stýrt þessum leik. Við breyttum byrjunarliðinu mikið frá síðasta leik þar sem það er mikilvægur leikur hjá okkur á föstudaginn. Við stóðum vel í mjög flottu Hauka liði þannig ég var mjög ánægður. Ég bað um það fyrir leik að við myndum gefa þeim leik, og mér fannst við gera það," sagði Tommy.

Haukar eru í fyrsta sæti í 2. deild á meðan Reynismenn eru í þriðja sæti í 3. deild. Þrátt fyrir það var mjótt á munum allan leikinn.

„Við létum þá aðeins koma til okkar, þó við séum vanir að spila hátt á vellinum og hafa boltann mikið í 3. deildinni. Við vissum að okkur yrði líkast til refsað ef við spiluðum þannig, mér fannst við gera það mjög vel. Ég var mjög ánægður með þann part, og ég var ánægður með möguleikana sem við fengum í skyndisóknum, mikið af flottum skyndisóknum. Svo skorum við úr einni skyndisókninni svo hefði annað geta komið í seinni hálfleik," sagði Tommy.

Reynismenn komust yfir snemma í seinni hálfleik en aðeins þrem mínútum seinna voru Haukarnir búnir að jafna aftur. Það hefði líkast til verið meiri líkur á góðum úrslitum ef þeir hefðu haldið forystunni lengur.

„Já já, en það er líka erfitt að liggja svona lengi í vörn, það tekur á. Eins og ég segi er ekki ósanngjarnt að Haukar vinna, en við höldum okkur inni í leiknum og þeir gátu ekki slappað af. Því við vorum alltaf hættulegir ef þeir misstu boltann, sérstaklega í fyrsta hálfleik" sagði Tommy.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.