Fotbolti.net
04.09.17 - 08:00
Magnús Már Einarsson

Eyjólfur: Hef aldrei upplifað það áður

Auglýsing
Eyjólfur: Hef aldrei upplifað það áður
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Möguleikarnir eru ágætir. Spánverjar eru með gríðarlega öflugt lið en önnur lið virðast vera jöfn. Þetta verður barátta um stigin og skemmtilegt,\"</I> segir Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U21 árs landsliðsins, um riðilinn sem er framundan í undankeppni EM. Ísland er með Spáni, Albaníu, Slóvakíu, Eistlandi og Norður-Írlandi í riðli.
Fyrsti mótherjinn verður Albanía á Víkingsvelli klukkan 17:00 í dag. „Þeir eru teknískir, fljótir og halda bolta við. Ég reikna með jöfnum leik en við ætlum að vera skarpari og vinna hann eins og við höfum gert undanfarin ár,\"

„Við byrjum á einum heimaleik og síðan eigum við fimm útileiki í röð. Ég hef aldrei upplifað það áður og það verður mjög sérstakt.\"

U21 árs liðið kemur betur undirbúið til leiks í undankeppnina en oft áður því að liðið fékk æfingaleiki gegn Georgíu, Sádi-Arabíu og Englandi á þessu ári.

„Það var virkilega ánægjulegt. Við erum nokkuð vel undirbúnir undir þetta. Við ætlum að reyna að búa til góða liðsheild eins og síðustu U21 árs landslið hafa gert hjá okkur. Við höfum verið nálægt því að komast í úrslitakeppnina og við stefnum þangað. Mér líst vel á þennan hóp og við eigum að geta gert góða hluti.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.