Fotbolti.net
04.09.17 - 20:52
Mist Rúnarsdóttir

Sísí: Nú er fókus á bikarleikinn

Auglýsing
Sísí og félagar setja nú allan fókus í bikarúrslitaleikinn gegn Stjörnunni á laugardag

Sísí og félagar setja nú allan fókus í bikarúrslitaleikinn gegn Stjörnunni á laugardag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Hertz
<i>„Þetta var ekki okkar dagur. Mér fannst fyrri hálfleikur fínt spilaður. Við vorum að verjast vel og það sem skildi að var að þær nýttu færin,“</i> sagði Sigríður Lára Garðarsdóttir, miðjumaðurinn öflugi í liði ÍBV, eftir þriggja mark tap gegn Breiðablik í Kópavoginum.
Það var augljóst á liði ÍBV að þær söknuðu þeirra Rutar Kristjánsdóttur og markahróksins Cloé Lacasse sem báðar tóku út leikbann í kvöld.

ÍBV vann frábæran sigur á toppliði Þórs/KA í síðustu umferð en hefur heilt yfir ekki gengið vel að safna stigum eftir EM-fríið. Hvað veldur?

„Við höfum alveg verið að spila vel en þetta hefur ekki verið að falla með okkur. Við vorum að gera klaufamistök og liðin hafa bara verið að refsa okkur núna,“ sagði Sísí en Eyjakonur færa nú alla athygli frá deildinni í bili og á bikarúrslitaleikinn gegn Stjörnunni næstkomandi laugardag.

„Núna er bara fókus á bikarleikinn. Það verður spennandi verkefni og við erum allar mjög spenntar fyrir þessu. Það verður gaman að fara aftur á Laugardalsvöllinn.“

„Allur bærinn er orðinn spenntur og það er bara bikarinn til Eyja!“
sagði Sísi að lokum en hægt er að horfa á allt viðtalið við hana í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.