04.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Al-Ittihad í viðræðum við Sunderland

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sádi-arabíska stórveldið Al-Ittihad er í viðræðum við Sunderland um félagaskipti fyrir kantmanninn efnilega Chemsdine Talbi.
Talbi er 21 árs landsliðsmaður Marokkó sem er fæddur og uppalinn í Belgíu. Hann lék fyrir unglingalandslið Belgíu en svaraði svo kallinu frá A-landsliði Marokkó.
Sunderland borgaði tæpar 20 milljónir punda til að kaupa Talbi úr röðum Club Brugge í fyrrasumar og á hann fjögur ár eftir af samningi.
Talbi skoraði fjögur mörk og gaf tvær stoðsendingar í 28 úrvalsdeildarleikjum á síðustu leiktíð og var ekki skráður í hóp Sunderland fyrir Evrópudeildina vegna óvissu um framtíð hans.
Talbi er talinn vilja skipta um félag en Al-Ittihad á eftir að ná samkomulagi við Sunderland um kaupverð. Glugginn í Sádi-Arabíu lokar á sunnudag.
Talið er að Sunderland vilji um 20 til 25 milljónir punda fyrir kantmanninn þar sem tyrknesku stórveldin Fenerbahce og Galatasaray eru einnig áhugasöm.