Fotbolti.net
04.09.26 - 11:00
Elvar Geir Magnússon

„Erum með sömu hugmynd um hvernig við viljum spila fótbolta“

Red Bull veitir vængi

Matthias Jaissle, nýr stjóri Newcastle.

Matthias Jaissle, nýr stjóri Newcastle.

Canon

Mynd: EPA

Ákefð og pressa verða væntanlega áberandi í dagskipuninni í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar á morgun, þegar Newcastle fær Bournemouth í heimsókn á St James’ Park.

Þar mætast tveir þýskir stjórar sem báðir koma úr Red Bull íþróttasamsteypunni.

Matthias Jaissle, nýr stjóri Newcastle, er fyrrum stjóri Red Bull Salzburg og Marco Rose sem stýrir Bournemouth var líka með Salzburg, og nýlega RB Leipzig.
Þakklátur eigendunum
TENGT EFNI

Þakklátur eigendunum

„Við erum með sömu hugmynd um hvernig við viljum spila fótbolta," segir Jaissle sem tók við Newcastle þegar Eddie Howe hætti óvænt í sumar.

„Ég og Matthias unnum í mörg ár í Red Bull kerfinu. Allir vita hvernig við vinnum, það sést bersýnilega. Hann er góður þjálfari og hefur komið sinni hugmyndafræði snöggt í lið sitt hjá Newcastle. Liðið spilar af ákefð og eru með pressumunstur sem er augljóslega öðruvísi en það var áður," segir Rose.

Newcastle er með fjögur stig úr fyrstu tveimur leikjum sínum en Bournemouth hefur eitt.
Marco Rose, stjóri Bournemouth.

Marco Rose, stjóri Bournemouth.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.