04.09.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía um helgina - Þrír stórleikir

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Lazio

Mynd: EPA
Það er gríðarlega spennandi helgi framundan í ítalska boltanum þar sem sex af bestu liðum deildarinnar mætast í stórleikjum.
Fjörið hefst strax í kvöld þegar Mikael Egill Ellertsson og félagar í Genoa taka á móti lærlingum Cesc Fábregas frá Como, sem reyndust spútnik liðið í fyrra og eru með fullt hús stiga eftir tvær umferðir á nýju tímabili.
Á morgun taka Ítalíumeistarar Inter á móti fyrrum meisturum Napoli í fyrsta stórleik helgarinnar, áður en Gian Piero Gasperini mætir sínum fyrrum lærlingum í Atalanta í afar spennandi slag á Ólympíuleikvanginum í Róm.
Juventus tekur á móti AC Milan í stórleik sunnudagsins og svo gæti Albert Guðmundsson spilað sinn fyrsta leik með Lazio á mánudagskvöldið.
Þess má geta að Þórir Jóhann Helgason er á mála hjá Venezia sem heimsækir Frosinone í nýliðaslag á sunnudaginn.
Föstudagur
18:45 Genoa - Como
Laugardagur
13:00 Fiorentina - Torino
16:00 Inter - Napoli
18:45 Roma - Atalanta
Sunnudagur
13:00 Frosinone - Venezia
13:00 Parma - Monza
16:00 Bologna - Sassuolo
18:45 Juventus - Milan
Mánudagur
16:30 Cagliari - Lecce
18:45 Udinese - Lazio