04.09.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Umboðsmaður Sarr og Camara mjög ósáttur

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fyrrum úrvalsdeildarleikmaðurinn Diomansy Kamara, sem starfar í dag sem umboðsmaður Ismaïla Sarr og Lamine Camara, er ósáttur með þá meðhöndlun sem hann telur afríska leikmenn fá í fótboltaheiminum. Hann gaf út yfirlýsingu eftir að tveir skjólstæðingar hans fengu ekki félagaskiptin sem þeir vildu undir lok félagaskiptagluggans.

TENGT EFNI
Sarr svekktur að fara ekki til Liverpool - „Þarf að melta þetta“
Sarr fékk ekki félagaskipti frá Crystal Palace til Liverpool en hann er 28 ára gamall og með þrjú ár eftir af samningi. Camara fékk þá ekki félagaskipti til Chelsea en óljóst er hvað gerðist nákvæmlega í því máli.
„Við verðum að koma þessari hugsun úr fótboltaheiminum þar sem farið er með afríska leikmenn sem hluti. Þú kaupir þá, ákveður verðið, semur um framtíðina og þeirra vilji endar aftast í forgangsröðinni. Afrískir leikmenn eiga meiri virðingu skilið fyrir vinnu sína. Það á að bera virðingu fyrir metnaði þeirra og draumum," sagði Kamara í yfirlýsingu sinni.
„Félagaskipti eru ekki bara tvö fótboltafélög og tölustafir. Á bakvið hvern samning er einstaklingur, ferill, draumar og lífsákvarðanir. Staðreyndin í fótboltaheiminum er sú að stundum geta félagsliðin ráðið örlögum leikmanna. En hvað um vilja og feril leikmannsins?
„Það verður að hlusta á leikmanninn og virða hans skoðun á ákvörðunum sem snúa að hans eigin framtíð. Við megum ekki gleyma því sem skiptir máli."

Íþróttastjóri Mónakó: Vil ekki fara í stríð við Everton og Chelsea

Mynd: EPA

Mynd: EPA