Rúnar Páll: Silfurskeiðin mun slá öll met
Auglýsing

Rúnar Páll gæti gert Stjörnuna að Íslandsmeisturum í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, viðurkennir að tilhlökkun eigi sér stað í herbúðum liðsins fyrir úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn gegn FH í dag.
Stjarnan hélt opna æfingu fyrir leikinn í gær og Fótbolti.net ræddi við Rúnar.

,,Þetta er frábær leikur og mikil tilhlökkun í okkar leikmannahópi og öllum í kring hjá Stjörnunni, og bærinn hlakkar til að sjá þennan leik,\" sagði Rúnar Páll við Fótbolta.net.
,,Við erum svosum ekki mikið að pæla í því hvar pressan sé. Við erum bara að fara að spila síðasta leik í Íslandsmóti og það snýst um það að verða Íslandsmeistarar eða ekki. Það er bara sami undirbúningur og alltaf, við förum í hvern einasta leik til að vinna hann.\"
,,Mig óraði ekki fyrir að spila hreinan úrslitaleik í lokin, en mér datt alveg í hug að við gætum verið í fyrstu þremur sætunum, en að spila úrslitaleik er óvanalegt.\"
Rúnar býst við hörkustemningu frá Silfurskeiðinni og í raun öllum Garðabæ.
,,Það verður magnað, ég held að Silfurskeiðin eigi eftir að slá öll met í stuðningi við eitt lið, og Garðbæingar. Þetta verður skemmtilegt.\"