Fotbolti.net
04.10.16 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Albert Guðmunds: Læri mikið af því að æfa með aðalliðinu

Auglýsing
Albert á æfingu með U21-landsliðinu í Víkinni í dag.

Albert á æfingu með U21-landsliðinu í Víkinni í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hinn afar efnilegi Albert Guðmundsson hefur leikið fantavel með unglinga- og varaliði PSV Eindhoven í Hollandi að undanförnu. Þessi 19 ára strákur er í U21-landsliðshópi Íslands sem er að búa sig undir tvo gríðarlega mikilvæga leiki.
„Við verðum að fara inn í þessa tvo leiki með það í huga að ná í sex stig. Það kallar í raun á blússandi sóknarbolta,\" segir Albert en U21-landsliðið mætir Skotlandi á Víkingsvelli 15:30 á morgun og svo Úkraínu á Laugardalsvelli í næstu viku.

Eins og Albert segir þarf liðið að stefna á að vinna þessa leiki í baráttunni um að komast í lokakeppn EM U21 sem verður í Póllandi á næsta ári. Hann kom inn sem varamaður í síðasta leik en það var hans fyrsti mótsleikur fyrir U21.

„Ég undirbý mig eins og ég sé að fara að byrja, eins og ég geri alltaf. Það er betra að vera tilbúinn. Ef ég byrja á bekknum þá kem ég bara klár inn.\"

Albert er ánægður með hvernig gengur hjá honum í Hollandi en á dögunum skoraði hann þrennu í leik með varaliði PSV í hollensku B-deildinni.

„Mér líður vel og er í góðu formi. Það hefur verið draumur minn frá því að ég var yngri að vinna við að spila fótbolta, vonandi næ ég að halda því sem lengst þannig,\" segir Albert sem bíður þolinmóður eftir tækifæri með aðalliði PSV.

„Ég æfi með aðalliðinu inn á milli og það er mjög gott. Það verður erfitt að brjótast inn í liðið en ég vinn að því. Það er gott að vera í kringum þetta lið og ég læri mikið af þeim.\"

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.