Fotbolti.net
23.07.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

2. deild kvenna: Augnablik skoraði sex - Jafnt í Breiðholti

Augnablik skoraði sex

Augnablik skoraði sex

Canon

Mynd: Aðsend

Hertz
Augnablik vann annan leik sinn og það nokkuð örugglega þegar liðið bar sigurorð af Smára, 6-1, í grannaslag í 2. deild kvenna í gær.
Augnablik var í miklum ham og leiddi með fimm mörkum í hálfleik.

Dóróthea Ósk Haraldsdóttir braut ísinn á 17. mínútu áður en Kolbrún Nanna Karlsdóttir skoraði tvívegis og Kristín Vala Stefánsdóttir einu sinni á næstu tuttugu mínútum. Ólöf Inga Pálsdóttir bætti við fimmta markinu undir lok fyrri hálfleiks.

Díana Ósk Th. Bjarnadóttir skoraði sjötta mark Augnabliks um miðjan síðari hálfleik en Rósa Björk Borgþórsdóttir gerði eina mark Smára undir lokin.

Augnablik vann því 6-1 og er í sjötta sæti með 16 stig. Smári situr á botninum með eitt stig og leitar enn að sínum fyrsta sigri.

ÍR og KFR skildu síðan jöfn, 1-1, í Breiðholtinu. Tara Dís Ármann kom ÍR yfir á 16. mínútu en Soffía Náttsól Andradóttir jafnaði þegar tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik.

KFR er í níunda sæti með átta stig en ÍR situr sæti neðar með fimm stig.

ÍR 1 - 1 KFR
1-0 Tara Dís Ármann ('16 )
1-1 Soffía Náttsól Andradóttir ('35 )

Smári 1 - 6 Augnablik
0-1 Dórothea Ósk Haraldsdóttir ('17 )
0-2 Kolbrún Nanna Karlsdóttir ('22 )
0-3 Kristín Vala Stefánsdóttir ('24 )
0-4 Kolbrún Nanna Karlsdóttir ('34 )
0-5 Ólöf Inga Pálsdóttir ('40 )
0-6 Díana Ósk Th. Bjarnadóttir ('66 )
1-6 Rósa Björk Borgþórsdóttir ('87 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Fjölnir10+4025
2Einherji10+5024
3Vestri10+3524
4Fylkir10+5723
5Afturelding10+2522
6Augnablik11-1516
7Dalvík/Reynir10-714
810-1213
9KFR11-428
10ÍR11-185
11Álftanes10-322
12Smári11-811
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.