23.07.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Evrópa í dag - Blikabanar á Hlíðarenda og finnskt lið í Garðabæ

Valur mætir Zrinjski Mostar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjörnumenn spila við Ilves frá Finnlandi

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Valur mætir Zrinjski Mostar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan, Valur og Vestri spila öll í forkeppni í Evrópu- og Sambandsdeildinni í dag auk þess sem fjöldi íslenskra atvinnumanna eru í eldlínunni.
Tveir Íslendingar verða í eldlínunni í Evrópudeildinni. Elías Rafn Ólafsson og félagar í Midtjylland heimsækja tyrkneska stórliðið Besiktas en Kristian Nökkvi Hlynsson og félagar í Twente mæta Ferencvaros frá Ungverjalandi.
Um er að ræða fyrri leikina í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.
Þrjú íslensk lið verða síðan í eldlínunni í Sambandsdeildinni. Vestri heimsækir RFS í Lettlandi klukkan 16:30 og Stjarnan tekur á móti finnska liðinu Ilves á Samsung-vellinum klukkan 19:00.
Stundarfjórðungi síðar hefst leikur Vals og Zrinjski Mostar, sem hefur tvívegis mætt Breiðabliki í forkeppni Evrópudeildarinnar.
Íslendingaslagur verður þegar GAIS, lið Róberts Frosta Þorkelssonar, mætir Nordsjaelland, þar sem Daníel Ingi Jóhannesson er á mála.
Íslendingalið Brann heimsækir Cluj í Rúmeníu en Eggert Aron Guðmundsson, Kristall Máni Ingason og Sævar Atli Magnússon leika allir með norska félaginu.
Panathinaikos, lið Sverris Inga Ingasonar, heimsækir Paks í Ungverjalandi. Sverrir sleit krossband á dögunum og verður því ekki með gríska liðinu.
Danska stórliðið FCK heimsækir Polessya. Rúnar Alex Rúnarsson hefur verið fastamaður í marki FCK á undirbúningstímabilinu en Viktor Bjarki Daðason og Gunnar Orri Olsen eru einnig í leikmannahópi félagsins.
Eyþór Martin Björgólfsson er á mála hjá Motherwell, sem mætir HB frá Færeyjum. Þá stýrir Sigurður Ragnar Eyjólfsson NSÍ Runavík gegn Koper en Alex Freyr Elísson er meðal lærisveina hans hjá færeyska félaginu.
Leikir dagsins:
Evrópudeildin:
18:00 Besiktas - Midtjylland
18:00 Twente - Ferencvaros
Sambandsdeildin:
16:30 Rigas FS - Vestri
17:00 GAIS - FC Nordsjaelland
17:00 Universitatea Cluj - SK Brann
18:00 Paks - Panathinaikos
18:00 Polessya - FCK
18:45 Motherwell - HB Torshavn
18:45 NSI Runavik - Koper
19:00 Stjarnan - Ilves
19:15 Valur - Zrinjski