Fotbolti.net
04.10.16 - 19:31
Magnús Már Einarsson

Pukki: Getum ekki hugsað um gengi Íslands í sumar

Auglýsing
Pukki: Getum ekki hugsað um gengi Íslands í sumar
Canon

Mynd: Getty Images

Icelandair
„Við viljum ná góðum úrslitum hér. Við vitum að Ísland er með gott lið og þetta verður ekki auðveldur leikur en við þurfum að spila nægilega vel til ná úrslitum,\" segir Teemu Pukki, framherji finnska landsliðsins, en hann verður í eldlínunni gegn Íslandi á fimmtudaginn.
Pukki fylgdist með íslenska landsliðinu á EM í sumar. „Ég sá nokkra leiki og þeir stóðu sig mjög vel þar. Við getum ekki hugsað um það. Við þurfum að einbeita okkur að þessum leik.\"

Ísland gerði jafntefli við Úkraínu í fyrsta leik riðilsins á meðan Finnar gerðu jafntefli við Kosovo á heimavelli.

„Þetta er jafn riðill. Allir geta unnið alla og við reynum að fara út á völl og vinna alla leiki.\"

Pukki er á mála hjá danska liðinu Bröndby en hann skoraði í báðum leikjunum gegn Val í Evrópudeildinni í sumar.

„Ég skoraði eitt og lagði upp annað í leiknum hér. Við náðum í góð úrslit og ég vona að ég geti endurtekið það.\"

Hjörtur Hermannsson er liðsfélagi Pukki hjá Bröndby.

„Hann er góður leikmaður. Hann er ungur miðvörður sem hefur spilað nánast alla leiki með okkur. Hann hefur verið mikilvægur fyrir okkur,\" sagði Pukki.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.