Fotbolti.net
04.10.19 - 20:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Championship: Birmingham með dramatískan sigur

Championship: Birmingham með dramatískan sigur
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Birmingham 2 - 1 Middlesbrough</b>
1-0 Fran Villalba ('33 )
1-1 Daniel Ayala ('87 )
2-1 Odin Bailey ('89 )
Það var einn leikur í Championship-deildinni á Englandi í kvöld. Birmingham tók á móti Middlesbrough.

Birmingham var mikið sterkari aðilinn í leiknum og þeir komust yfir á 33. mínútu þegar Spánverjinn Fran Villalba skoraði. Hans fyrsta mark fyrir Birmingham eftir félagaskipti frá Valencia.

Birmingham var í rauninni með yfirburði, en það er ekki alltaf spurt að því í fótbolta. Middlesbrough jafnaði á 87. mínútu og var það varnarmaðurinn Daniel Ayala sem skoraði eftir Birmingham mistókst að koma aukaspyrnu í burtu.

Heimamenn höfðu þó ekki sagt sitt síðasta í leiknum og komust þeir aftur yfir stuttu síðar og tryggðu sér dramatískan sigur. Varamaðurinn Odin Bailey skoraði markið mikilvæga.

Sanngjarn sigur Birmingham staðreynd. Birmingham er í 12. sæti með 16 stig, Boro er í 20. sæti með 10 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.