Fotbolti.net
04.10.20 - 16:36
Birna Rún Erlendsdóttir

Ingunn: Við getum klifrað upp töfluna

Auglýsing
Ingunn Haraldsdóttir, fyrirliði KR.

Ingunn Haraldsdóttir, fyrirliði KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Hertz
„Já, það er ekki hægt að segja annað. Þetta eru mjög svekkjandi úrslit og mér finnst 5-0 kanski ekki segja alla söguna um leikinn.“ sagði Ingunn Haraldsdóttir, fyrirliði KR, eftir 5-0 tap á móti Þrótti í Pepsi Max deild kvenna í dag. 
„Þær nýta sín tækifæri mjög vel. Við sofnuðum á verðinum, fáum á okkur mörk úr tveimur föstum leikatriðum og síðan víti. Þannig að þær nýttu sín tækifæri í dag og ekki við. Við hefðum nú alveg með smá heppni og aðeins meiri áræðni kanski getað sett inn nokkur, en það datt ekki inn í dag.“



„Við ákváðum að stíga aðeins hærra upp og settum meiri pressu á þær sem virkaði mjög vel, eins og sást í seinni hálfleik og bæta aðeins einbeitinguna í föstum leikatriðum.“



„Það eru alveg tólf stig eftir í pottinum fyrir okkur. Við eigum eftir að spila slatta af leikjum þannig það segir ekki alla söguna. Stemningin er mjög góð og við horfum bara á það að það eru tólf stig eftir og við getum klifrað upp töfluna.“




Viðtalið í heild sinni má nálgast í spilaranum hér að ofan. 
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.