Fotbolti.net
04.10.20 - 21:52
Ívan Guðjón Baldursson

Klopp: Sögðumst ætla að skrifa söguna

Klopp: Sögðumst ætla að skrifa söguna
Canon

Mynd: Getty Images

Jürgen Klopp tjáði sig um neyðarlegt 7-2 tap Liverpool gegn Aston Villa fyrr í kvöld. Hann er ánægður með sóknarleik sinna manna í leiknum en skiljanlega gríðarlega ósáttur með varnarleikinn.
Að leikslokum hrósaði hann andstæðingunum fyrir vel spilaðan leik og gaf sín fyrstu viðbrögð við tapinu.

„Aston Villa voru virkilega góðir í dag. (Ollie) Watkins var stórkostlegur og auðvitað er alltaf erfitt að eiga við Jack (Grealish) sem getur skapað færi úr öllum áttum. Fyrir nokkrum árum sögðumst við ætla að skrifa söguna. Við gerðum það í dag þó það hafi verið óheppilegt," sagði Klopp.

„Við bjuggumst ekki við þessu en það gerðist. Það vill enginn tapa 7-2. Vonandi tókum við út allan kvótann af mistökum og kjaftæði á tímabilinu í einum leik og getum haldið áfram á sömu braut og áður."

Liverpool er með níu stig eftir fjórar umferðir af nýju úrvalsdeildartímabili. Næsti leikur er gegn nágrönnunum í Everton sem tróna á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. Liðin mætast um miðjan október, eftir landsleikjahlé.

„Við vorum ekki slakir í kvöld, við vorum lélegir. Ég verð að viðurkenna það en ég get ekki breytt því. Ég væri til í að spjalla við strákana um tapið en þeir eru að fara út í landsleikjahlé. Vonandi koma þeir heilbrigðir til baka og geta þá notað tvo daga til að undirbúa sig fyrir slaginn gegn Everton.

„Við vorum mjög skapandi í sóknarleiknum. Við skoruðum ekki úr færunum en vorum mjög skapandi. Vandinn var þegar Aston Villa fór í skyndisókn, þá vorum við alltof lélegir að loka á þá. Í kvöld gerðum við allt sem á ekki að gera í fótboltaleik."
Klopp: Sögðumst ætla að skrifa söguna
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.