Fotbolti.net
04.10.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson

Real Madrid afhenti ný gögn í Negreira rannsókninni

Real Madrid afhenti ný gögn í Negreira rannsókninni
Canon

Mynd: EPA

Rannsókn evrópska fótboltsambandsins UEFA á Negreira málinu svokallaða er enn í gangi og var Real Madrid að skila inn nýjum gögnum.
„Barcelona mútaði dómarasambandinu í tvo áratugi"
TENGT EFNI

„Barcelona mútaði dómarasambandinu í tvo áratugi"

UEFA tilkynnti um nýja sendingu gagna frá Real Madrid á dögunum. Stórveldið heldur því fram að erkifjendur sínir í liði Barcelona hafi svindlað yfir langt tímabil á Spáni með mútugreiðslum til José Negreira.

Negreira var áður fyrr dómari í spænska boltanum en lagði flautuna á hilluna 1992 og tók til starfa sem varaforseti tæknilegrar nefndar dómarasambandsins tveimur árum síðar.

Hann hélt því starfi heillengi ásamt því að þiggja verulegar greiðslur frá Barcelona á árunum 2001 til 2018, þar til hann fór á eftirlaun.

Greiðslurnar þáði Negreira til að veita Barcelona ráðgjöf í dómaramálum og bendir saksóknari á að algjör leynd ríkti yfir greiðslunum. Afar fáir stjórnendur Barcelona vissu af þeim, þó að þær hafi numið um 7 til 8 milljónum evra í heildina.

Málið spratt upp þegar skattayfirvöld á Spáni rannsökuðu greiðslur upp á 1,4 milljónir evra frá Barcelona til fyrirtækis í eigu José Negreira á árunum 2016 til 2018. Þau komust í kjölfarið af því að fyrirtæki í eigu Negreira höfðu verið að fá greiðslur frá félaginu allt frá árinu 2001.

Barcelona hefur gefið út yfirlýsingu vegna málsins og segist ætla að halda áfram fullu samstarfi við yfirvöld sem eru með greiðslurnar til skoðunar.

Á árunum 2001 til 2018 vann Barcelona spænsku deildina 9 sinnum á meðan Real Madrid hampaði Spánarmeistarabikarnum 5 sinnum.

Barca vann spænska Konungsbikarinn 6 sinnum yfir sama tíma en Real Madrid aðeins tvisvar.
Real Madrid afhenti ný gögn í Negreira rannsókninni
Canon

Mynd: EPA

Real Madrid afhenti ný gögn í Negreira rannsókninni
Canon

Mynd: Real Madrid

Real Madrid afhenti ný gögn í Negreira rannsókninni
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.