Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   þri 19. maí 2026 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
„Barcelona mútaði dómarasambandinu í tvo áratugi"
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Florentino Pérez forseti Real Madrid hefur farið mikinn í fjölmiðlum upp á síðkastið eftir að hafa upplifað gagnrýni.

Real Madrid er að klára annað árið sitt í röð án þess að vinna stóran titil og ákvað Pérez að kalla til skyndikosninga um nýjan forseta félagsins í kjölfar gagnrýninnar. Kosningarnar fara fram næstu helgi en ekki er búist við að neinn muni bjóða sig fram gegn Pérez.

„Að vinna Meistaradeildina 6 sinnum á 10 árum er greinilega ekki nóg fyrir sumt fólk. Við unnum tvo titla á síðustu leiktíð, af hverju telja þeir ekki núna?" sagði Pérez í sjónvarpsþætti El Chiringuito. „Við unnum evrópska Ofurbikarinn og Álfukeppnina. Fyrir mér eru þetta titlar sem telja. Er það skylda fyrir okkur að vinna Meistaradeildina á hverju ári? Hvað eiga önnur fótboltalið í Evrópu þá að gera, fremja sjálfsmorð? Auðvitað viljum við halda áfram að vinna Meistaradeildina, það er markmiðið."

Pérez fór víðan völl og ræddi hin ýmsu málefni sem hafa verið í fjölmiðlum. Hann ræddi meðal annars um lekann í búningsklefanum, slæmt gengi á tímabilinu og dómgæsluna í La Liga.

„Við teljum okkur hafa fundið lekann úr búningsklefanum og við munum taka hörðum höndum á því máli. Þetta eru svik við merki Real Madrid.

„Við kennum HM félagsliða um slæmt gengi á þessu tímabili. Við slepptum undirbúningstímabilinu útaf HM og spiluðum svo á þriggja daga fresti nánast allt tímabilið. Við lentum í alltof mikið af meiðslum sem komu niður á frammistöðunni og svo voru 16-18 stig tekin af okkur með slæmum dómaraákvörðunum. Mér finnst fáránlegt að það hefur reynst auðveldara fyrir okkur að vinna Meistaradeildina heldur en La Liga."


Pérez er í mjög opinberu stríði við Barcelona og hefur talað mikið um fyrrum dómarann og yfirmann dómaramála á Spáni, José Negreira, sem er sakaður um að hafa þegið mútur frá Barcelona yfir um 20 ára tímabil. Málið er í gangi fyrir dómstólum en engin sönnunargögn hafa fundist sem gætu leitt til alvarlegs dóms fyrir Barcelona.

„Þeir mútuðu dómarasambandinu á Spáni í tvo áratugi og svo ljúga þeir blákalt fyrir dómstólum. Negreira málið er stærsti skandall í sögu fótboltaheimsins og ég veit að fótboltaunnendur bíða spenntir eftir að fá niðurstöðu í málið."

   12.05.2026 19:58
Stórfurðulegur fréttamannafundur forseta Real Madrid - „Þeir þurfa að skjóta mig!“

Slapp
banner