04.11.26 - 09:15
Brynjar Ingi Erluson
Yamal orðinn markahæsti táningur í sögu Meistaradeildarinnar

Lamine Yamal

Mynd: EPA

Lamine Yamal

Mynd: EPA

Lamine Yamal, leikmaður Barcelona, sló enn eitt metið þegar Börsungar unnu Aston Villa 3-0 í Meistaradeildinni í gær.
Yamal skoraði fyrsta mark Barcelona í sigrinum, en það var jafnframt hans fjórtánda mark í Meistaradeildinni á ferlinum.
Hann er aðeins 19 ára gamall en hefur þegar skrifað nafn sitt í sögubækur keppninnar. Með markinu varð hann markahæsti táningur í sögu Meistaradeildarinnar og fór þar með fram úr Kylian Mbappé, sem skoraði þrettán mörk áður en hann varð tvítugur.
Þetta er aðeins eitt af fjölmörgum metum sem Yamal hefur sett í keppninni. Hann er yngsti leikmaðurinn til að vera í byrjunarliði, yngstur til að bæði skora og leggja upp mark í sama leik og sá yngsti til að skora í undanúrslitum.
Þá er hann einnig yngsti leikmaðurinn til að spila tíu og tuttugu leiki í Meistaradeildinni, auk þess að vera markahæsti leikmaður keppninnar fyrir 19 ára aldur.

Lamine Yamal has overtaken Kylian Mbappé to become the highest-scoring teenager in Champions League history ???? https://t.co/JD7IinEGRD
— Football on TNT Sports (@footballontnt) November 3, 2026