Fotbolti.net
03.11.26 - 22:13
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Birmingham upp í annað sætið

Championship: Birmingham upp í annað sætið
Canon

Mynd: Birmingham City

Birmingham City er komið upp í annað sæti ensku B-deildarinnar eftir öruggan 3-0 sigur á Millwall í kvöld.
Það tók Birmingham aðeins 48 sekúndur að komast yfir þegar Alex Cochrane skoraði með hörkuskoti fyrir utan vítateiginn.

Max Bird og Jay Stansfield bættu síðan við tveimur mörkum áður en hálftími var liðinn af leiknum.

Með sigrinum fór Birmingham upp í annað sæti deildarinnar með 26 stig, aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Middlesbrough, en Millwall situr í 13. sæti með 18 stig.

WBA og Southampton gerðu 1-1 jafntefli á Hawthorns.

Isaac Price kom heimamönnum yfir úr vítaspyrnu á 22. mínútu, en Samuel Edozie jafnaði metin þegar nokkrar mínútur voru liðnar af síðari hálfleik.

WBA er í fimmta sæti deildarinnar með 25 stig, en Southampton fylgir fast á hæla þess í sjötta sæti með 24 stig.

West Brom 1 - 1 Southampton
1-0 Isaac Price ('22 , víti)
1-1 Samuel Edozie ('53 )

Birmingham 3 - 0 Millwall
1-0 Alex Cochrane ('1 )
2-0 Max Bird ('16 )
3-0 Jay Stansfield ('29 )

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough13+1328
2Birmingham14+1326
3Swansea14+526
4Stoke City14+526
5West Brom14+525
6Southampton14+1524
7Wolves13+724
8West Ham13+1522
9Sheffield Utd14+322
10Portsmouth14+322
11QPR14+521
12Norwich14+318
13Millwall14-118
14Blackburn14-218
15Bristol City13-218
16Bolton14-717
17Lincoln City14-1015
18Cardiff City13-114
19Wrexham13-414
20Watford14-1014
21Charlton Athletic14-1114
22Burnley14-810
23Derby County14-187
24Preston NE14-185
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.