04.11.26 - 06:00
Kári Snorrason
Sjálfsmark færði tveimur Íslendingum 7 milljónir króna

Sjálfsmark Suzuki tryggði jafnteflið.

Mynd: EPA

Sjálfsmark Suzuki tryggði jafnteflið.

Mynd: EPA
Tveir getspakir tipparar voru einstaklega glaðir með jafntefli Aston Villa og Fulham síðastliðinn laugardag, enda tryggðu úrslitin þeim báðum 13 rétta á enska getraunaseðlinum og sjö milljónir króna í skattfrjálsan vinning hvorum.
Tippararnir taka báðir reglulega þátt í getraunastarfi hjá sínum félögum, annar í Grindavík og hinn hjá KFS í Vestmannaeyjum, en bæði félög hafa haldið úti öflugu getraunastarfi um árabil.

Báðir notuðu þeir svokölluð getraunakerfi og þurftu að treysta á jafntefli í síðasta leik dagsins til að tryggja sér 13 rétta.
Leikurinn var hnífjafn og spennan mikil allt fram á lokamínúturnar. Draumaúrslit tipparanna urðu síðan að veruleika þegar markvörður Aston Villa, Zion Suzuki, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark og tryggja jafnteflið.
Íslenskar Getraunir óskar vinningshöfunum innilega til hamingju.